Only available in Icelandic, Music from one of the best childrens plays in Iceland today.
Út er komin frábær ný barnaplata með lögunum úr leiksýningunni Algjör Sveppi – Dagur í lífi stráks. Leikritið er sýnt í Íslensku Óperunni um þessar mundir og hefur hlotið stórfínar viðtökur bæði áhorfenda og gagnrýnenda.
Sýningin er byggð á barnaplötu Gísla Rúnars Jónssonar, Algjör sveppur, og er leikstýrt af Felix Bergssyni en Jón Ólafsson sá um upptökustjórn á tónlistinni. Það er leikarinn Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, sem fer með aðalhutverkið og gerir það af sinni alkunnu snilld. Hinn leikari sýningarinnar er Orri Huginn Ágústsson. Platan inniheldur öll lögin sem er að finna í sýningunni og á vafalaust eftir að vekja mikla lukku hjá yngstu kynslóðinni.
Lagalisti:
Farðu á fætur, Ammæli, Vorvísur, Slepp ekki við svepp, Ílustrá, Ég langömmu á, Grettir (Sig), Gvendarbrunnavatn, Mest er nestið best, Bíldruslan, Sumarbúðir skáta, Bessi Bósi og Lassi, Í sveitinni, Töfraþula, Í strætó, Sveppi blokkflautar, Maríus og Baktus, Langafa og ömmubæn, Alli og Edda, Segðu mér sögu, Sofðu rótt, Draumaland og Pappírstungl.