Product 1/6
Atlaskort - askja með 31 kortiKortadeild Máls og menningar hefur gefið út nýjan kortaflokk af Íslandi í mælikvarðanum 1:100 000.Atlaskortin eru án efa einn viðamesti flokkur korta af Íslandi sem nokkru sinni hefur komið fyrir almenningssjónir. Landið allt, frá hæstu tindum til annesja og eyja, er sýnt á 31 stórbrotnu korti.Með stafrænni kortatækni eru svipbrigði landsins sýnd með ótrúlegri nákvæmni svo hvert mannsbarn skynjar hæð fjalla, dýpt dala og víðáttur öræfanna líkt og flogið væri yfir. Kortin eru afar nákvæm og geyma samtals yfir 43.000 örnefni. Vegir og slóðar eru GPS-mældir, en kortin sýna einnig fjölda göngu- og reiðleiða. Allar skýringar eru á fjórum tungumálum; íslensku, ensku, þýsku og frönsku.Til marks um nákvæmni kortanna má geta þess að ef þeim er öllum skeytt saman í eitt kort þekja þau 17 fermetra vegg.Kortin er unnin af Hans H. Hansen landfræðingi, sem hlotið hefur fjölda verðlauna fyrir kortagerð sína, m.a. fyrir kortabók Máls og menningar og Íslandsatlas, en atlaskortin byggja á því mikla verki.Atlaskortin eru ómissandi ferðafélagar fyrir alla þá sem hyggja á ferð um landið. Þau eru fáanleg öll saman í glæsilegri öskju sem hentar vel til gjafa og ferðalaga. Askjan er 15 cm hæð og dýpt en 27 cm á breidd.Höfundur: Hans H. Hansen