Við Íslendingar eigum stórkostlega auðlind, þar sem ósnortin náttúra Íslands er, dýralíf hennar, fegurð og glæsileiki heillar alla sem hennar fá notið.
Laxveiðiárnar eru snar þáttur í náttúrudýrkun margra, sumir láta sér nægja að sjá laxinn stökkva í fossum og flúðum og njóta náttúrunnar við árnar, aðrir vilja komast í návígi við laxinn með veiðistöng að vopni.
Oft eru háðar harðar rimmur og aldrei fyrirséð hvor hefur betur laxinn eða veiðimaðurinn.
Length: 60 min
Í myndinni koma fram ýmsir þekktir veiðimenn
Director: Friðrik Þór Friðriksson
Audio: Icelandic
Subtitles: English